Leyfishafar

Ökuskólinn í Mjódd heldur námskeið fyrir leyfishafa í fólks og farmflutningum. Námskeiðin eru haldin tvisvar sinnum á ári, einu sinni að vori og einu sinni að hausti

  • Rekstrarleyfi til fólksflutninga – í samræmi við lög nr. 28/2017 um farþegaflutninga og farmflutninga á landi. Farþegaflutningar á landi í atvinnuskyni með bifreiðum sem skráðar eru fyrir 9 farþega eða fleiri. Leyfi fyrir sérútbúnar bifreiðar og ferðaþjónustuleyfi.
  • Rekstrarleyfi til farmflutninga  – í samræmi við lög nr. 28/2017 um farþegaflutninga og farmflutninga á landi. Farmflutningar á landi í atvinnuskyni með vélknúnum ökutækjum eða samtengdum ökutækjum þar sem leyfð heildarþyng fer yfir 3,5 tonn og leyfilegur hámarkshraði ökutækja er 45 km á klst. eða meiri.

Ökuskólinn í Mjódd heldur einnig námskeið fyrir leyfishafa leigubifreiða. Námskeiðin eru haldin í hverjum mánuði.