Bílpróf

Næstu námskeið

NÁMSTÍMINN

Námskeiðin eru 4 kvöld, 22 kennslustundir, og skiptast í:

  • Ö1: 12 kennslustundir, kenndar á  þriðjudegi og miðvikudegi. Ökuskóli 1 kostar 21.000 og með námsgögnum 23.000
  • Ö2: 10 kennslustundir, kenndar á  þriðjudegi og miðvikudegi. Ökuskóli 2 kostar 13.000

Kennt er frá kl. 17:00 til kl. 21:00 hvert kvöld.
Mælst er til þess að ökunemar samþætti bóklegt og verklegt nám. Áður en í Ökuskóla 1 er komið þarf ökuneminn að hafa fundið sér ökukennara og farið í verklegan aksturstíma.
Námsefnið á hverju kvöldi er sjálfstætt, nemandinn getur mætt á tveimur mismunandi kvöldum. Þ.e. fyrst á þriðjudagskvöldi  og síðan á  miðvikudagskvöldi tveimur vikum síðar.

Ökukennari og nemandi ákveða sjálfir hvernig staðið er að fræðilegri kennslu í samræmi við verklega tíma.

Þátttöku á námskeiðin þarf að tilkynna áður en mætt er á námskeiðin. Nauðsynlegt er að mæta kl. 16:45 á þriðjudagskvöldum við upphaf Ö1 og Ö2.

Fyrir þá nemendur sem þurfa aukna aðstoð og læra á sínum hraða, er kennsla veitt af sérkennara alla þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 14:30 – 16:00.

Námið er í samvinnu við Fjölmennt símenntunar og þekkingar- miðstöð. Kennari er Anna F. Sigurðardóttir.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Ökuskólans í síma 567 0300 eða senda fyrirspurn á [email protected]

KENNARAR

Kennarar á námskeiðum til B-réttinda eru:

  • Hreiðar P. Haraldsson, ökukennari
  • Eiríkur Hans Sigurðsson, ökukennari
  • Þórður Bogason, ökukennari
  • Þorsteinn S. Karlsson, ökukennari
  • Anna F. Sigurðardóttir
  • Steinþór Darri Þorsteinsson

Haldin verða námskeið fyrir ensku, pólsku- og tælenskumælandi þegar þátttaka er næg.

NÁMSEFNI, KENNSLUGÖGN OG NÁMSMAT

Á námskeiðunum er farið yfir umferðarlög og reglugerðir þeim tengd.

Notuð er kennslubókin Út í umferðina ásamt verkefnum á verkefnavef skólans.

Á lokadegi námskeiðsins taka nemendur fræðilegt próf til að meta námsárangur.

Nemendur fá aðgang að verkefna vef með æfingaverkefnum fyrir bóklegt próf hjá Frumherja.

HVENÆR HEFJAST NÁMSKEIÐIN?

Ö1 og Ö2 námskeiðin hefjast ávallt á þriðjudögum aðra hverja viku og eru haldin allt árið um kring. Breyting getur þó orðið á kennsludögum í kringum stórhátíðir og almenna frídaga.

Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku á námskeiðunum fyrirfram.
Skólinn áskilur sér rétt á að fella niður námskeið ef þátttakendur eru færri en sex.

SKRÁNING Á NÁMSKEIÐ

Skrá mig í almennt ökunám

Hringið og fáið nánari upplýsingar í síma 567-0300.
Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga, kl. 10:00-17:00. föstudaga kl. 10:00-16:00.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á [email protected]