Um skólann

Ökuskólinn í Mjódd    S: 567-0300
kt. 4612992109

Stjórn skólans skipa:

Björn Lúðvíksson – Skólastjóri 897 0346 [email protected]
Ásgeir Gunnarsson 862 1756 [email protected]
Guðmundur Ágústsson 897 8446 [email protected]
ÓIafur Traustason 692 6123 [email protected]
Þorsteinn Karlsson 862 7274 [email protected]

Um skólann:

Í tengslum við hægri breytinguna árið 1968 hóf Ökukennarafélag Íslands rekstur ökuskóla og stafaði skólinn undir nafni Fræðslumiðstöðvar Ökukennarafélags Íslands og var til húsa að Stigahlíð 45. Þar var boðið upp á námskeið til undirbúnings almennu ökuprófi og síðar námskeið fyrir létt bifhjól og dráttarvélar.

Árið 1983 flutti Ökukennarafélagið starfsemi sína í Þarabakka 3, í Mjóddinni og þar með ökuskólann líka og fljótlega var farið að kalla skólann„Ökuskólann í Mjódd“. Skólinn hefur boðið upp á námskeið til aukinna ökuréttinda frá árinu 1993 eða síðan hið opinbera hætti rekstri slíkra námskeiða.
Námskeið sem undirbúa nemendur fyrir almennt ökupróf eru haldin í hverri viku allt árið um kring og einnig eru haldin námskeið fyrir ensku, pólsku og tælenskumælandi fólk þegar þátttaka er næg.

Skólinn bíður upp á nám til:

  • Almennra ökuréttinda á íslensku, ensku, pólsku
  • Aukinna ökuréttinda á leigubíl, vörubíl, rútu og eftirvagn
  • Bifhjólaréttinda, bæði til A og M réttinda
  • Endurmenntun atvinnubílstjóra
  • Leiðbeinendanámskeið fyrir leiðbeinendur í æfingaakstri
  • Námskeið fyrir afleysingamenn á leigubíl
  • Námskeið vegna rekstarleyfa
  • Sérstakt námskeið vegna akstursbanns
  • Vistakstursnámskeið

Ökunet netökuskóli.

Ökuskólinn í Mjódd býður upp á fjarnám á okunet.is