ÖKUNÁM
- Allt ökunám á Íslandi fer fram á vegum löggiltra ökukennara
- Ökuskólar með starfsleyfi annast bóklega kennslu
- Málefni ökunáms lúta stjórnsýslulegu forræði Samgöngu og sveitastjórnaráðuneytisins. Ráðuneytið hefur falið Umferðarstofu að annast framkvæmd verkefnisins í sínu umboði.
- Ökunám má ekki fara fram með öðrum hætti.
- Ökunám til allra réttindaflokka á að fara fram samkvæmt námsskrám sem settar eru fyrir hvern flokk fyrir sig.
- Námskrárnar eru samdar af Umferðastofu að höfðu samráði við Ökukennarafélag Íslands.
- Áður en þær eru teknar í notkun þarf Samgöngu og sveitastjórnaráðuneytið að samþykkja þær
NÁMSSKRÁ / ÖKUNÁMSBÓK
- Ökunám á að fara fram samkvæmt námskrá fyrir hvern flokk fyrir sig.
- Ökunámsbók er upplýsingabók um stöðu ökunáms hverju sinni.