ÆFINGAAKSTUR
- Þegar neminn er tilbúinn að mati ökukennarans getur hann hafið æfingaakstur með leiðbeinenda.
- Sótt er um leyfi hjá lögreglustjóra ef öllum kröfum hefur verið fullnægt.
- Ökukennarinn skal undirbúa leiðbeinandan t.d. með því að leiðbeinandinn fylgist með í að minnsta kosti einum ökutíma. Einnig bjóða sumir ökuskólar upp á sérstök námskeið fyrir leiðbeinendur.
- Neminn hafi lokið Ö.1. Sem er að lágmarki 12 kennslustundir.
- Að lágmarki 10 verklegum ökutímum.
- Undirskrift ökukennara er staðfesting þess að kennarinn telji nemann hæfan.
- Samþykki tryggingafélags sem tryggir ökutækið.
- Sýslumaður kannar hvort leiðbeinandinn sé hæfur.
- Sé þessum skilyrðum fullnægt gefur Lögreglustjóri ( Sýslumaður) út æfingaleyfi.
- Lengd á æfingaaksturstíma fer eftir aðstæðum nema og leiðbeinenda hverju sinni. Mest er gert ráð fyrir að tímabilið geti verið 15 mánuðir.
- Fyrirkomulag getur verið með ýmsu móti. Æfingaakstur getur farið fram samhliða ökunámi og kennsluakstri eða hlé verið tekið á skyldubundnu námi meðan æfingaaksturinn fer fram.
- Ekki er skylda að fara í æfingaakstur. Nemi getur lokið ökunámi án þess að hann sé framkvæmdur.